Biography
Reviews
The Groups
Discography
Contact

Home

 

The Riot
Trío Björns
Thoroddsen
& Egill Ólafsson

Guitar Islancio
Cold Front
Svare/Thoroddsen
BT & Luther
Gammar
Svartfugl

 

The Riot
Þegar þeir Bjössi og Dóri spiluðu saman á Q-bar í sumar var Dóri í heita sætinu í tónleikaröð Bjössa. Þeir léku við hvern sinn fingur og tættu af sér blúsana hvern af öðrum í dúndrandi stemmningu. Eins og "olía og vatn" sagði Ríkarður Örn Pálsson tónlistargagnrýnandi Morgunblaðsins um samspil þessara ólíku gítarleikara "..... þegar mættust virtúós kammerdjassfimi Thoroddsens og hlutfallslega hráslagalegur og sálarþrunginn blússláttur Halldórs, er stundum skartaði nístandi flöskuhálsskrensi af stálgyrtum litlafingri." Öflugir tónlistarmenn lofa engu öðru en góðri tónlist.

Björn Thoroddsen er löngu kunnur fyrir djassgítaleik þá oft órafmagnaðann. Í þetta sinn ætlar hann að munda rafgígjuna og er til alls líklegur. Bjössi Thor, einsog vinir hans kalla hann hefur s.l ár verið athvæðamikill við tónlistargjörning í útlöndum og leikur m.a með hljómsveitinni Cold Front sem skipuð er úrvals tónlistarmönnum. Bjössi heldur með FH í blíðu og stríðu enda gamall FH ingur og hefur enn trú á því að hann fái að spila meistaraflokksleik í handbolta með gamla félaginu sínu. Bjössi hefur fengið fjölda viðurkenninga, ekki samt fyrir handbolta, heldur fyrir tónlist og m.a valinn Jasstónlistarmaður ársins 2003.

Jón Ólafsson hefur tvisvar verið valinn hljómborðsleikari ársins á Íslensku Tónlistarverðlaununum (reyndar fyrir löngu síðan!) Stytturnar brotnuðu í flutningum fyrir 3 árum. Sem hljóðfæraleikari og upptökustjóri hefur Jón komið við sögu yfir 130 hljómplatna (þegar síðast var talið). Jón sendi frá sér sína fyrstu sólóplötu árið 2004 og var gripurinn tilnefndur til Íslensku Tónlistarverðlaunanna.Jón heldur með Þrótti í knattspyrnu og býr í Vesturbænum. Jón hefur verið meðlimur í hljómsveitinni Nýdönsk frá árinu 1990.

Dóri Braga er líklegast þekktasti blúsmaður Íslands í dag. Hann hefur starfrækt hljómsveit sína, Vini Dóra í fjölda ára ásamt því að leika á tónlistarhátíðum út um allan heim. Hann er einnig listrænn stjórnandi Blúshátíðar í Reykjavík. Síðasta sumar lék Halldór Bragason í boði Zoru Young á Blúshátíðinni í Chicago sem er stærsta og virtasta blúshátíð heims. Kvikmynd í fullri lengd um ævi Dóra er í undirbúningi og hugmyndavinnslu, hjá lítt þekktu kvikmyndafyrirtæki . Vinnuheitið er " Adventures of a Bluesman" draumurinn er að fá Johnny Depp til að leika Dóra.

Ásgeir Óskarsson er einn virtasti trommari á Íslandi og hefur hann spilað með flestum stærstu hljómsveitum og tónlistarmönnum Íslands.meðal annars Rifsberja, Icecross, Pelican,Eik, Póker, Þursunum, Stuðmönnum Vinum Dóra og KK Hann hefur unnið að um 300 plötum og gefið 3 plötur út sjálfur, "Veröld smá og stór", "Áfram" og "Sól" Ævisaga full af smáatriðum væntanleg !

Jón Rafnsson hefur, allt frá því hann flutti heim frá Svíþjóð árið 1990 verið mjög virkur í íslensku tónlistarlífi og leikið jöfnum höndum; jazz, klassík, með danshljómsveitum, í leikhúsum, auk þess að leika inn á fjölda geisladiska.
Hann er ótvíræður íslandsmeistari í tríóum og má þar nefna m.a. tríóin Guitar Islancio, Delizie Italiane, Titanic og Tríó BT, svo fáein séu nefnd og starfar auk þess sem kennari við tónlistarskóla FÍH og tónlistarskóla Hafnarfjarðar.
Jón hefur leikið á bassa frá því hann var 15 ára og er án efa í hópi 200 bestu bassaleikara landsins.

Tónlistin sem þeir félagar leika verður uppreisn gegn poppi, blús og djasstónlist undir áhrifum frá kosmiskum kröftum og spyrnugleði Þróttara . Snarstefjaður sígaunaseiður að hætti galdramanna af ströndum við ljóð Snorra á Húsfelli og Robert Johnson með takthryni Vodoo galdramanna Missisippi og seiðmannna Afríku.



 

...The best performers made the most out of this opportunity...

One such musican is Icelandic guitarist Björn Thoroddsen.

“Jazz performer of the year 2003”
The Icelandic Music awards.

To contact Bjorn via E-mail please click here - your message will be answered within 24 hours


 

Contact us