Biography
Reviews
The Groups
Discography
Contact

Home

 

The Riot
Trío Björns
Thoroddsen
& Egill Ólafsson

Guitar Islancio
Cold Front
Svare/Thoroddsen
BT & Luther
Gammar
Svartfugl


Svare/Thoroddsen tríó er samstarf Björns Thoroddsen og Jorgen Svare. Þriðji maðurinn í tríóinu er Jón Rafnsson, kontrabassaleikari. Þeir hafa gefið út einn geisladisk "Jazz Air" í Danmörku og á Íslandi. Það er Olufsen Records sem gefur diskinn út í Danmörku, en Sonet á Íslandi. Á diskinum eru tólf lög, þekktir söngdansar á borð við Over the Rainbow og Lady Be Good, klassísk Ellingtonverk einsog Caravan og Mood Indigo sem Ole Koch Hansen hefur útsett auk laga eftir Björn Thoroddsen og Jörgen Svare.


Jörgen Svare, Björn and Jón Rafnsson

Tríóið hefur leikið víða m.a Whasington, Boltemore, Minneapolish, Kaupmannahöfn, Reykjavík og Skern. Jörgen Svare er einn fremsti klarinettuleikari Evrópu af svíngskynslóðinni. Hann varð heimsþektur er hann lék með Papa Bues Viking Jazzband allt frá því að Arne Bue Jensen stofnaði hljómsveitina 1956. Hann lék með Papa Bue til 1995 og var ásamt trompetleikaranum Finn Otto Hansen helsti einleikari hljómsveitarinnar er hélt tónleikua um allan heim. Eftir það hefur Jörgen leikið með eigin hljómsveitum, m.a. kvintett er hann stofnaði með trompetleikaranum Ole Stoller og hann hefur hljóðritað fjölda platna með löndum sínum og mönnum á borð við Edmond Hall og Wild Bill Davidsson. Klarinettutónn Svare er einstaklega mjúkur og fallegur og fáum mönnum er sveiflan jafnt í blóð borin. Jörgen hefur þrívegis leikið á Íslandi. Fyrst á minningartónleikunum um Jonna í Hamborg í Íslensku óperunni 1996, þá á RúRek jazzhátíðinni með Guitar Islancio 2001 og loks á minningartónleikum um Finn Eydal á Akureyri 2002.

 

 

...The best performers made the most out of this opportunity...
One such musican is Icelandic guitarist Björn Thoroddsen.

“Jazz performer of the year 2003”
The Icelandic Music awards.

 

Contact us